Síður

miðvikudagur, 12. febrúar 2014

What to do to day ?

 einmanna grjót
Vá þvílíkur lúxús fékk að sofa út í morgun enginn skóli hjá drengnum og þá var bara sofið.En verð samt að viðurkenna að ég sé hálfpartinn eftir að hafa ekki komið mér fyrr á fætur.Hef það á tilfinningunni núna eins og ég hafi misst af einhverju,nýt þess svo að dútla á  morgnana.En í staðin er ég alveg úthvíld og spriklandi hress var frekar lúinn eftir þessa 2 vinnudaga já og hnéð ljóta orðið ansi bólgið og er það enn.Núna sit ég hérna og er að reyna að ákveða hvað ég eigið að gera af mér á þessum dýrðlega frídegi nýta hann í botn,humm what to do to day???Þarf eiginlega að þrífa hérna, þvo þvott já og huga að því að taka seríurnar niður (búinn að íhuga það í nokkrar vikur)Væri líka mjög gott að afþýða frystikistuna já og hreinsa ískápin já og svo kanski huga að þessari fermingarveislu sem er að bresta á .....................................eeeeennn held að ég prjóni bara smá já og auðvitað þamba kaffi það lengir víst lífið.Ég er ekkert löt er það ? Eða haldin frestunnar áráttu eða hvað?

 En alveg sama hvað þessi dagur breytist í þá ætla ég bara að hafa hann góðan !!!


Í haust í sveitinni :)

       

                                           KV   Baddý lata prinsessann :)





                   






   

Engin ummæli:

Skrifa ummæli